Til hönnuða

Markmið mitt er að veita hannyrðafólki hágæða efnivið í næsta verkefni. Þessvegna hef ég áhuga á samstarfi við metnaðarfulla hönnuði, textílhönnuði, fatahönnuði og aðra sem setja fram uppskriftir af flíkum úr garni. Hekl eða prjón, skiptir mig ekki máli. Samstarfið fer yfirleitt fram í einhverskonar “garnstuðningi”. Ef þú hefur áhuga á að nota Vatnsnes Yarn í þína hönnun, fylltu þá endilega út formið og ég verð svo í bandi, eða sendu mér línu á kristin@vatnsnesyarn.is.

Ég býð ríkulegt úrval af fallegum litum. Vinnustofan mín er á Hvammstanga í Húnaþingi vestra. Þar handlita ég ýmsar tegundir af garni, svo sem merínó ull, BFL ull, silki og kasmír sem hentar vel í handprjónaðar flíkur, í hekl, vefnað og jafnvel útsaum.

Ég vel hráefnið af kostgæfni. Hvergi í ferlinu hafa dýr eða manneskjur þurft að þjást og hvergi í ferlinu er gengið á náttúruna. Ég býð bæði uppá superwash meðhöndlaða ull og hreina ull. Superwash meðhöndlaða ullin sem ég er með er meðhöndluð á náttúruvænan máta (með eftirfarandi vottunum: EU Flower og  OEKO-TEX 100).