Eldbjörg – Merino Fingering

3.890 kr.

Merino Fingering er mjúkt, lipurt og prjónast / heklast einstaklega vel. Þetta garn er spunnið í jafnan snúð sem gerir að það hnökrar lítið.

Sérlega gott í heimferðasett, barnaföt, sjöl, húfur, vettlinga, toppa, boli, peysur og flíkur sem eiga að liggja næst húðinni.

Í vel þéttri prjónfestu hentar Merino Fingering vel í sokka (prj. 2.25mm eða minni).

Upplýsingar

Garn: 100% merino ull (sw)
Þyngd: 100g
Lengd: 400m
Uppbygging: 4ply / fingering
Tillaga að prjóna/nála stærð:  2.5mm – 3.5mm
Tillaga að prjóna stærð fyrir sokka:  2.25mm
Þvottaleiðbeiningar: Handþvottur uppúr volgu/köldu vatni eða léttur hringur í vél. Leggið flatt til þerris.
Vottun: Þessi garngrunnur ber OekoTex Standard 100 vottun.

Prjónfesta
Prjónað í hring: á prjóna númer 2.25mm: 36L og 48 umf
Prjónað slétt: á prjóna númer 2.5mm: 32L og 48 umf

WPI: 22.

3 stk til - þú getur pantað í því magni sem þú þarft, vinnslutíminn er 10-14 virkir dagar.

Upplýsingar

Merino Fingering er handlitað garn frá Vatnsnes Yarn. Þetta garn inniheldur fíngerða merínó ull sem er virkilega mjúk viðkomu. Merino Fingering er fjögurra-þráða (4ply) og í fingering grófleika.

Pantanir

Þú getur pantað þetta garn í því magni sem þú þarft en það kemur fram hve margar hespur eru til litaðar á lager. Þú færð alltaf garn úr sömu litun ætlir þú að panta fleiri en til eru litaðar á lager, þ.e allar hespurnar verða í sama lotunúmeri.

Vinnslutími fyrir pantanir umfram það sem til er litað, er 10 – 14 virkir dagar. Þú færð tilkynningu með tölvupósti þegar ég hef hafist handa við að lita fyrir þig :)

Nánar
Garn

Grófleiki

Fingering

Litasvið

,

,

Litun

Litur

Meðhöndlun

Metrafjöldi í hespu

Spunatrefjar

Þyngd

Vottun