Lemon Curd – True Merino Fingering

3.890 kr.

True Merino Fingering er hrein merínó ull, unnin á ábyrgan máta (eins og allt garn frá Vatnsnes Yarn) og hefur ekki verið superwash meðhöndluð. Sérlega gott í heimferðasett, barnaföt, sjöl, húfur, vettlinga, toppa, boli, peysur og flíkur sem eiga að liggja næst húðinni. Hvort um er að ræða slétt prjón, garðaprjón, stroff eða munsturprjón tekur prjónles úr True Merino Fingering sig einstaklega vel út. Vel defíneraðar lykkjur og má vel gera ráð fyrir fallegri útkomu.

Upplýsingar

Garn: 100% hrein merínó ull – ekki superwash
Þyngd: 100g
Lengd: 400m
Uppbygging: 4ply / fingering
Tillaga að prjóna/nála stærð:  2.5mm – 3.5mm
Þvottaleiðbeiningar:Mjög mildur handþvottur í köldu/volgu vatni. Leggið flatt til þerris.
Vottun: Þessi garngrunnur ber OekoTex Standard 100 vottun.

Prjónfesta
Á prjóna númer 2.75mm: 28L og 52 umf.

WPI: 22.

Litað eftir pöntun - vinnslutíminn er 10-14 virkir dagar.

Upplýsingar

True Merino Fingering, sem ekki er superwash meðhöndlað, er handlitað garn frá Vatnsnes Yarn. Þetta garn inniheldur fíngerða merínó ull sem er virkilega mjúk viðkomu. True Merino Fingering er fjögurra-þráða (4ply) og í fingering grófleika.

Pantanir

Þú getur pantað þetta garn í því magni sem þú þarft en það kemur fram hve margar hespur eru til litaðar á lager. Þú færð alltaf garn úr sömu litun ætlir þú að panta fleiri en til eru litaðar á lager, þ.e allar hespurnar verða í sama lotunúmeri.

Vinnslutími fyrir pantanir umfram það sem til er litað, er 10 – 14 virkir dagar. Þú færð tilkynningu með tölvupósti þegar ég hef hafist handa við að lita fyrir þig :)

Nánar
Garn

Spunatrefjar

Litun

Grófleiki

Fingering

Litasvið

,

Meðhöndlun

Litur

Metrafjöldi í hespu

Þyngd

Vottun