Merchant & Mills // Gyllt skæri

1.490 kr.

Lítil gyllt skæri fullkomin í að klippa enda við frágang og passa vel í verkefnapokann.

2 stk til

Vörunúmer: MM-G-SKAERI Flokkar: ,

Um Merchant & Mills:

Carolyn Denham og Roderick Field er fólkið á bakvið Merchant and Mills. Stíll þeirra er einstakur en þau ákváðu í upphafi að það að færa flotta hönnun á hversdagslega hluti eins og títuprjóna, málbönd, skæri og fleira myndi draga þá sem hefðu mögulega ekki stundað handverk í miklum mæli fram í dagsljósið en um leið voru þau staðráðin í að færa handverksfólki flott verkfæri til að vinna með.

Eins og segir á vef þeirra þá er tilgangur þeirra þessi: að hanna uppskriftir, efni og verkfæri sem leyfa handverksfólki að skapa sér fallegar flíkur. Þau bjóða endigargóðan efnivið í klæðilegar flíkur, sem annan valkost á móti óendanlegra og ekki svo ólíkra valkosta, af fjöldaframleiddum fötum.

Þó svo að upphaflega hafi þau hafið hönnun á þeim verkfærum sem við notum í saumaskap eru þessi sömu verkfæri notuð þegar unnið er með garn. Okkur hjá Vatnsnes Yarn líst óendanlega vel á markmið þeirra og sýn og þessvegna er þessi vara í boði hjá okkur.

Hjálpartæki