Moutarde – True Merino DK
3.890 kr.
True Merino DK er hrein og lífræn merínó ull, unnin á ábyrgan máta og hefur ekki verið superwash meðhöndluð. Þetta garn er í DK grófleika og hentar því vel í opnar sem lokaðar peysur, gollur, gróf sjöl, hlýja vettlinga, legghlífar, kraga og húfur.
Upplýsingar
Garn: 100% merínó ull – lífræn – ekki superwash
Þyngd: 100g
Lengd: 225m
Uppbygging: 4ply
Grófleiki: DK
Tillaga að prjóna/nála stærð: 3.5mm – 4.5mm
Þvottaleiðbeiningar: Mjög mildur handþvottur í köldu/volgu vatni. Leggið flatt til þerris.
Vottun: Þessi garngrunnur ber OekoTex Standard 100 vottun.
Prjónfesta
Á prjóna númer 3.75mm: 19L og 34 umf
WPI: 14.
Litað eftir pöntun - vinnslutíminn er 10-14 virkir dagar.
True Merino DK er handlitað garn frá Vatnsnes Yarn. Þetta garn inniheldur ómeðhöndlaða merinó ull, semsagt er ekki superwash meðhöndluð ull. True Merino DK er fjögurra-þráða (4ply) og er í DK (double knit) grófleika.
Pantanir
Þú getur pantað þetta garn í því magni sem þú þarft en það kemur fram hve margar hespur eru til litaðar á lager. Þú færð alltaf garn úr sömu litun ætlir þú að panta fleiri en til eru litaðar á lager, þ.e allar hespurnar verða í sama lotunúmeri.
Vinnslutími fyrir pantanir umfram það sem til er litað, er 10 – 14 virkir dagar. Þú færð tilkynningu með tölvupósti þegar ég hef hafist handa við að lita fyrir þig :)
Þyngd | 100 g |
---|---|
Garn | |
Spunatrefjar | |
Litun | |
Grófleiki |
DK |
Litasvið | , , |
Meðhöndlun | |
Litur | |
Metrafjöldi í hespu | |
Þyngd | |
Vottun | , |